Alexander Nevzorov og Gerd Heuchmann

  • 19. janúar 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Endasprettur/Hestar og hestamenna 1. tbl. 2009

Alexander Nevzorov og Gerd Heuchmann munu ekki lifa það að ekki sjá drauma sína rætast. Til þess er andstæðingur þeirra of öflugur: Peningar, græðgi og metorðagirnd. Nevzorov hefur óbeit á hestatúrisma og keppni í hestaíþróttum og elur í brjósti þá von að í framtíðinni verði þær bannaðar. Heuschmann hefur með rökum bent á að mjög stór hluti keppnishrossa [í heimi stóru hestanna] hljóti örkuml og sé lógað fyrir aldur fram vegna vondrar meðferðar, sem einkum má rekja til rangrar og ósanngjarnrar reiðmennsku.

 

Það er þó ærinn munur á viðhorfum og skoðunum þeirra tveggja til hestamenskunnar. Nevzorov er öfgafullur. Beisli og skeifur eru í hans huga ónáttúrulegir aðskotahlutir sem ógna heilbrigði og vellíðan hestsins. Hverskonar keppni er dýraníð. Hesturinn er heldur ekki farartæki. Heuchmann er öllu jarðbundnari. Hann er að vísu sannfærður um að mikill hluti keppnishrossa þjáist og skaðist vegna rangrar reiðmennsku og þjálfunar. En hann telur að hægt sé að ráða bót á því með fræðslu; gömlu reiðsnillingarnir hafi gert hlutina rétt.

 

Ég hef ekki fundið ástæðu til að efast um heiðarleika þessara manna. Báðir hafa mátt þola háð og spott, jafnvel ofsóknir. Þeir láta sig hafa það. Og þótt skoðanir þeirra kunni að finnast öfgafullar í dag, þá er ekki víst að svo verði eftir nokkur ár eða áratugi. Fjöldinn hafnar yfirleitt nýjum hugmyndum til að byrja með. Eftir nokkra skoðun sýnist mér að margt sé hægt að læra af þeim félögum. Leiðtogar okkar í menntamálum á Hólaskóla telja það einnig og síðastliðin tvö ár nýtt ýmislegt úr kenningum þeirra. 

 

Jens Einarsson

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link