Stóðhestaveislan
Þá er komið að því að kynna til leiks nokkur af þeim úrvalshrossum sem munu mæta á Stóðhestaveisluna í Samskipahöllinni nk. laugardag.
Við fáum góða heimsókn að norðan, en þeir feðgar Þór Jónsteinsson og Egill Már Þórsson mæta með alsystkynin Kjark og Sögu frá Skriðu – vígalegt atriði þar á ferð!
Frá ræktunarbúinu Miðási koma tveir úrvals gæðingar og bræður, þeir Óskahringur og Ópall, sem báðir hafa verið að gera góða hluti á kynbótabrautinni á síðustu árum.
Seiðssonurinn Galdur frá Reykjavík mun kíkja á svæðið, en sá fór í fínan dóm í fyrra og mun eflaust láta ljós sitt skína.
Aðdáendur rauðskjótta litarins fá að sjálfsögðu eitthvað fyrir sinn snúð, því tveir rauðskjóttir glæsihestar, þeir Verdí frá Torfunesi og Kandís frá Litlalandi, hafa boðað komu sína og ekki ólíklegt að einhverjir fleiri rauðskjóttir gæðingar bætist í hópinn.
Síðast en ekki síst þá mun Jakob Sigurðsson mæta til leiks með sjálfan Nökkva frá Syðra-Skörðugili. Þar er á ferð hestur sem margir spá að muni slá í gegn í sumar og því fróðlegt að sjá hann taka nokkur vel valin hófatök í höllinni um helgina.
Á næstu dögum munum við kynna fleiri hross til leiks, engar smá kanónur þar á ferð. Miðasala á veisluna fer fram í Líflandi Reykjavík og Borgarnesi, Top Reiter, Ástund og hjá Baldvin og Þorvaldi á Selfossi. Ekki missa af veislunni, tryggið ykkur miða í tíma!