Skáreimin líklega aftur inn
Þau tíðindi berast af vettvangi FEIF að skáreimin við stangarbeisli verði aftur leyfð í keppni. Breytingin hefur þó ekki tekið gildi.
Mikil umræða skapaðist þegar mexíkóskir krossmúlar og enskir reiðmúlar með skáreim, notað með íslenskum stangarmélum og/eða með öðrum mélum með vogarafli, voru sett á bannlista í FIPO reglum FEIF. Reglunar gilda í öllum aðildarlöndum FEIF og ná þar bæði yfir íþrótta- og gæðingakeppni.
Samkvæmt upplýsingum hafa engin ný rök komið fram sem styðja bannið sem tók gildi 1. apríl 2011. Á meðan margir fögnuðu því töldu aðrir vankanta vera á banninu, t.a.m. væru engin haldbær rök eða rannsóknir sem studdu við bannið. Því þykir líklegt að það falli úr gildi.
Bannið var samþykkt með meirihluta á sportráðstefnu FEIF árið 2011 en margir íslenskir knapar og dómarar settu sig á móti banninu. Meðal annars tóku nokkrir hestamenn sig saman og söfnuðu undirskriftum með áskorun þess efnis að leyfa aftur skáreim í gæðingakeppni. Landssambandið gaf þá út tilkynningu að málið þyrfti að fara fyrir Landsþing. Tillaga hópsins var hins vegar ekki sett fram innan tiltekins frests fyrir Landsþingið 2012 og því var breytingartillagan ekki tekin fyrir.
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV