Það styttist í Bautamótið

  • 10. febrúar 2014
  • Fréttir
Skráningu lýkur í lok vikunnar

Opna bautamótið í tölti er haldið í skautahöllinni á Akureyri þann 15. febrúar. Mótið hefst kl. 20:00, aðgangseyrir 1.800, frítt fyrir 12 ára og yngri. Skráningargjald 3.000. Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri. Hjálmaskylda á svellinu. Keppendum er heimilt að skrá fleiri en eitt hross til leiks. Riðnir 3 hringir á tölti (hægt, hraðamun og fegurðar). Tvöfalt vægi á hægatölti.

Æfingartími fyrir keppendur er föstudagskvöldið 14. feb. kl. 21:15-22:15 (innifalið í skráningargjaldi). Þar hafa einungis rétt á að mæta þau hross sem skráð eru til leiks með “sínum” knöpum. Þáttökugjald greiðist á staðnum. Tekið er við skráningu á netfang [email protected] og í símum: 896-8463 Helga og 897-3818 Gummi til kl. 21:00 miðviku- dagskvöldið 12. feb. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link