Reiðmenn í leit að gæðingum
Í skammdeginu skipta gæðingar um eigendur. Metnaðarfullir knapar fjárfesta í reyndum og eða álitlegum keppnishestum, eða fá aðra til að leggja í púkkið. Nokkrir þekktir gæðingar og stóðhestar eru nú í umræðunni sem slíkir kandídatar, en meira um þá eftir áramótin. Óhætt er að segja að mikið sé um að vera hjá reiðmönnum á næsta ári, bæði Landsmót og heimsmeistaramót. Það hefur ekki gerst síðan 1970, eða þar um bil. Það þýðir að sjálfssögðu að fleiri möguleikar eru í boði, en jafnframt að erfiðara getur orðið að stilla upp einstökum hrossum og einbeita sér að einu ákveðnu verkefni. Það útheimtir mikla og nákvæma vinnu að þjálfa upp keppnishest og toppa hann á einu ákveðnu móti. Mjög fá hross ná framúrskarandi árangri á fleiri en einu stórmóti á ári. Í fyrsta tölublaði Hesta og hestamanna á nýju ári, 2011, munum gægjast í hesthúsið hjá nokkrum þekktum knöpum og taka púlsinn á gæðingavali þeirra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH