Þórarinn sigraði fjórganginn

  • 20. febrúar 2016
  • Fréttir
Uppsveitadeild Flúðasveppa

Fyrsta mót í Uppsveitadeild Flúðasveppa 2016 var haldið í gærkvöldi í Reiðhöllinni  á Flúðum.  Keppt var í fjórgangi og fjölmenntu gestir hvaðanæva af til að fylgjast með skemmtilegri keppni og fylltu höllina.  Deildin er mikilvægur þáttur í mótahaldi uppsveitanna og er fyrir félaga í hestamannafélögunum Loga, Trausta og Smára. 

Flúðasveppir styrkja deildina og Gullfoss Kaffi styrkir verðlaunagripi og er þessum fyrirtækjum þakkað þeirra framlag til að efla deildina.

Margir góðir hestar voru skráðir til leiks í fjórgangnum, nýjir knapar og ungir en einnig eldri og reyndar knapar sem þekkja keppnisvöllinn vel.  Eftir forkeppni stóð Þórarinn Ragnarsson fyrir lið Vesturkots efstur á hestinum Hring frá Gunnarsstöðum I með einkunnina 7.17  Ekki langt á eftir varð Matthías Leó Matthíasson úr liði Pálmatrés á hryssunni Nönnu frá Leirubakka með einkunnina 6.93.  Í þriðja sæti í forkeppninni varð Sólon Morthens á hryssunni Ólínu frá Skeiðvöllum með 6.77 og félagi hans í liði Hrosshaga-Sunnuhvols Arnar Bjarki Sigurðsson á Glæsi frá Torfunesi varð í fjórða til fimmta sæti með Guðmanni Unnsteinssyni á Prins frá Langholtsskoti sem keppti fyrir lið Kílhrauns báðir með 6.50. 

Tveir knapar urðu jafnir upp úr B-úrslitum í A-úrslit með sömu einkunn 6.40 en það voru Árný Oddbjörg Oddsdóttir á Frigg frá Leirulæk fyrir liði Hrosshaga-Sunnuhvols og Guðjón Sigurðsson fyrir lið Pálmatrés. 

Það voru því ansi margir inn á vellinum í A-úrslitum sem er í minna lagi í Reiðhöllinni á Flúðum. Knapar sýndu mjög góða reiðmennsku í A-úrslitum og hrossin fóru vel.  Matthías og Þórarinn skiptust á að leiða A-úrslitin en Þórarinn hafði það að lokum með fallegri sýningu á yfirferðartölti og varð sigurvegari með einkunninna 7.50 en Matthías Leó fékk 7.40 og Sólon Morthens 7.03.

Keppendur og gestir fóru glaðir út í nóttina og hlakka til 18 mars þegar fimmgangurinn fer fram.

Viðtal við Þórarinn

Niðurstöður:

A-úrslit
Lið Knapi Hestur IS numer Litur Faðir Móðir Einkunn
1 Vesturkot Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum I IS2009167169 Brúnn, stjörn. hringey. glasey. Hróður frá Refsstöðum Alma Rún frá Skarði 7,5
2 Pálmatré Matthías Leó Matthíasson Nanna frá Leirubakka IS2008286704 Rauð/milli- einlit Væringi frá Árbakka Brún frá Árbakka 7,4
3 Hrosshagi / Sunnuhvoll Sólon Morthens Ólína frá Skeiðvöllum IS2010286682 Brún/milli- einlit Orri frá Þúfu í Landeyjum Ósk frá Ey I 7,03
4 Kílhraun Guðmann Unnsteinsson Prins frá Langholtskoti IS2002188262 Jarpur/ljós einlitt Hrynjandi frá Hrepphólum Drottning frá Langholtskoti 6,67
5 Hrosshagi / Sunnuhvoll Arnar Bjarki Sigurðarson Glæsir frá Torfunesi IS2009166213 Rauður/milli- einlitt Mídas frá Kaldbak Gletta frá Torfunesi 6,7
6 Pálmatré Guðjón Sigurðsson Gná frá Grund II IS2006265630 Bleik/álótt einlit Álfasteinn frá Selfossi Glíma frá Vindheimum 6,57
7 Hrosshagi / Sunnuhvoll Árný Oddbjörg Oddsdóttir Frigg frá Leirulæk IS2006236750 Brún/mó- stjörnótt Háfeti frá Leirulæk Pólstjarna frá Nesi 6,1

B-úrslit 
 Hrosshagi / Sunnuhvoll Árný Oddbjörg Oddsdóttir Frigg frá Leirulæk IS2006236750 Brún/mó- stjörnótt Háfeti frá Leirulæk Pólstjarna frá Nesi 6,4
 Pálmatré Guðjón Sigurðsson Gná frá Grund II IS2006265630 Bleik/álótt einlit Álfasteinn frá Selfossi Glíma frá Vindheimum 6,4
8 Vesturkot Lárus Sindri Lárusson Kotra frá Steinnesi IS2008256298 Brún/milli- einlit Hófur frá Varmalæk Kylja frá Steinnesi 6,33
9 Landstólpi Hermann Þór Karlsson Rosi frá Efri-Brúnavöllum I IS2008187976 Móálóttur,mósóttur Möller frá Blesastöðum 1A Dama frá Lönguhlíð 6,17

Forkeppni
Lið Knapi Hestur IS númer Litur Faðir Móðir Einkunn
19 Vesturkot Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum I IS2009167169 Brúnn, stjörn. hringey. glasey. Hróður frá Refsstöðum Alma Rún frá Skarði 7,17
7 Pálmatré Matthías Leó Matthíasson Nanna frá Leirubakka IS2008286704 Rauð/milli- einlit Væringi frá Árbakka Brún frá Árbakka 6,93
9 Hrosshagi / Sunnuhvoll Sólon Morthens Ólína frá Skeiðvöllum IS2010286682 Brún/milli- einlit Orri frá Þúfu í Landeyjum Ósk frá Ey I 6,77
1 Hrosshagi / Sunnuhvoll Arnar Bjarki Sigurðarson Glæsir frá Torfunesi IS2009166213 Rauður/milli- einlitt Mídas frá Kaldbak Gletta frá Torfunesi 6,5
22 Kílhraun Guðmann Unnsteinsson Prins frá Langholtskoti IS2002188262 Jarpur/ljós einlitt Hrynjandi frá Hrepphólum Drottning frá Langholtskoti 6,5
17 Hrosshagi / Sunnuhvoll Árný Oddbjörg Oddsdóttir Frigg frá Leirulæk IS2006236750 Brún/mó- stjörnótt Háfeti frá Leirulæk Pólstjarna frá Nesi 6,43
23 Pálmatré Guðjón Sigurðsson Gná frá Grund II IS2006265630 Bleik/álótt einlit Álfasteinn frá Selfossi Glíma frá Vindheimum 6,4
11 Vesturkot Lárus Sindri Lárusson Kotra frá Steinnesi IS2008256298 Brún/milli- einlit Hófur frá Varmalæk Kylja frá Steinnesi 6,13
18 Landstólpi Hermann Þór Karlsson Rosi frá Efri-Brúnavöllum I IS2008187976 Móálóttur,mósóttur Möller frá Blesastöðum 1A Dama frá Lönguhlíð 6,13
3 Vesturkot Hulda Finnsdóttir Hildingur frá Bergi IS2010137336 Brúnn/milli- stjörnótt Uggi frá Bergi Hilda frá Bjarnarhöfn 6,1
16 Lið Límtré Vírnets Bragi Viðar Gunnarsson Yrsa frá Túnsbergi IS2010288282 Rauð, stjörnótt glófext Hljómur frá Túnsbergi Storð frá Hreiðurborg 6,07
15 Pálmatré Halldór Þorbjörnsson Ópera frá Hurðarbaki IS2006287460 Grá/brún einlit Krákur frá Blesastöðum 1A Ólína frá Hábæ 6,03
2 Landstólpi Sigurbjörg Bára Björnsdóttir Fagriblakkur frá Vorsabæ II IS2008187984 Brúnn/milli- einlitt Forseti frá Vorsabæ II Nös frá Vorsabæ II 5,93
6 Kílhraun Guðjón Örn Sigurðsson Fylkir frá Skollagróf IS2006188201 Jarpur/dökk- stjörnótt Taktur frá Skollagróf Freisting frá Skollagróf 5,87
20 Brekka / Dalsholt Jón Óskar Jóhannesson Frigg frá Hamraendum IS2005238965 Jörp/milli- einlit Forseti frá Vorsabæ II Skikkja frá Glæsibæ 5,8
21 JÁVERK Líney Kristinsdóttir Kolfinna frá Fellskoti IS2009288471 Brún/dökk/sv. einlit Huginn frá Haga I Keila frá Fellskoti 5,73
24 Lið Límtré Vírnets Erna Óðinsdóttir Gjálp frá Hvammi I IS2009288370 Brún/milli- einlit 5,7
8 Lið Límtré Vírnets Þorsteinn Gunnar Þorsteinsson Messa frá Stafholti IS2008225726 Brún/milli- einlit Mídas frá Kaldbak Etna frá Halldórsstöðum 5,67
12 Brekka / Dalsholt Finnur Jóhannesson Óðinn frá Áskoti IS2006186512 Jarpur/milli- einlitt Sveinn-Hervar frá Þúfu í Land. Fiðla frá Áskoti 5,53
4 Brekka / Dalsholt Emil Þorvaldur Sigurðsson Ingadís frá Dalsholti IS2006201184 Rauð/dökk/dr. einlit Orri frá Þúfu í Landeyjum Koldís frá Kjarnholtum II 5,5
13 JÁVERK Karitas Ármann Blökk frá Þjóðólfshaga 1 IS2006281811 Brún/milli- einlit Akkur frá Brautarholti Bjarkey frá Miðhúsum 5,1
10 Landstólpi Eiríkur Arnarsson Kolla frá Blesastöðum 1A IS2008287804 Brún/milli- einlitt Krákur frá Blesastöðum 1A Kolbrún frá Brattholti 5,07
14 Kílhraun Björgvin Viðar Jónsson Þráinn frá Selfossi IS2007187750 Rauður/milli- einlitt Lúðvík frá Feti Jódís frá Tungu 4,8
5 JÁVERK Gústaf Loftsson Nökkvi frá Hrafnsstöðum IS2007165057 Brúnn/milli- einlitt Andvari frá Ey I Gáta frá Hrafnsstöðum 0

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link