Sigurbjörn Bárðarson sigrar annað árið í röð Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum
Fresta þurfti lokamóti Meistaradeildar VÍS sem halda átti í lok apríl og er svo komið að ekki verður hægt að ná öllum knöpum saman til að halda lokamót. Einhverjir eru enn að glíma við pestina og aðrir hafa ekki möguleika á því að mæta.
Því hefur verið ákveðið að fella síðasta mótið niður í ljósi óviðráðanlegra aðstæðna og verður staða stigasöfnunar liða og knapa að loknum 7 greinum af 9 látin verða lokastaða mótaraðarinnar.
Verðlaunaafhending Meistaradeildar VÍS mun fara fram á Íslandsmótinu í hestaíþróttum sem haldið verður að Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 25. – 28. ágúst nk.
Lokastaða í stigakeppni einstaklinga:
1 Sigurbjörn Bárðarson Lífland 50
2 Sigurður Sigurðarson Lýsi 35
3 Eyjólfur Þorsteinsson Málning 30.5
4 Jakob S. Sigurðsson Frumherji 30
5 Viðar Ingólfsson Frumherji 26
6 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Hestvit 25
7 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga 23.5
8 Sigurður V. Matthíasson Málning 23
9 Hinrik Bragason Árbakki / Hestvit 22
10 Teitur Árnason Árbakki / Hestvit 19
11 Lena Zielinski Lýsi 18.5
12 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter 15
13 Ragnar Tómasson Lífland 13
14 Árni Björn Pálsson Lífland 12
15 – 16 Elvar Þormarsson Top Reiter 11
15 – 16 Halldór Guðjónsson Lýsi 11
17 Valdimar Bergstað Málning 10.5
18 – 19 Þorvaldur Á. Þorvaldsson Top Reiter 10
18 – 19 Ævar Örn Guðjónsson Lífland 10
20 Sigurður Óli Kristinsson Frumherji 6
21 Artemisia Bertus Auðsholtshjáleiga 5
Lokastaða í stigakeppni liða:
1 Málning 268.5
2 Árbakki/Hestvit 254
3 Frumherji 252
4 Lífland 242
5 Lýsi 231
5 Auðsholtshjáleiga 191.5
7 Top Reiter 175
Mikill styrkur var í keppninni í vetur og var keppnin æsispennandi. Þar sem ekki var hægt að ljúka keppni í ár og deildin aldrei verið sterkari, hefur verið ákveðið að bjóða öllum knöpum aftur sæti í deildinni á næsta ári.
Meistaradeildin er búin að festa sig rækilega í sessi sem einn stærsti viðburður ársins í hestamennsku og er vaxandi áhugi á henni. Gott áhorf var á sjónvarpsþætti sem sýndir voru á RÚV eftir hvert mót. Gefin var út handbók sem dreift var víða og var góð umfjöllun um deildina í fjölmiðlum.
Aðalfundur Meistaradeildarinnar verður haldinn í veitingasal Ölfushallarinnar þann 23. september kl. 20:00 og eru áhugasamir hvattir til að mæta.
Nánari upplýsingar um Meistaradeild VÍS veitir:
Rúnar Þór Guðbrandsson
Formaður stjórnar Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum
Sími: 861-4000
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH