Eyjólfur er hress
Eyjólfur Þorsteinsson, Hafnfirðingur og Sörlamaður, var sigursæll á Reykjavíkurmóti í hestaíþróttum. Hann hlaut gull í fjórgangi Meistara á Klerki frá Bjarnanesi með 8,07, gull í fjórgangi 1. flokki á Hlekk frá Þingnesi með 7,67, gull í slaktaumatölti Meistara á Ósk frá Þingnesi með 8,50, og gull í samanlögðum stigum í fjórgangi meistara.
Að auki var Eyjólfur ofarlega í fleiri greinum; í skeiðgreinum, tölti og fimmgangi. Þá má minna á að hann vann sér rétt í A úrslitum Meistara, bæði á Klerk og Ósk, en varð að velja annað hrossið eðli málsins samkvæmt. Sannarlega frábær árangur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH