Tilnefnd ræktunarbú
Fagráð í hrossarækt hefur tilnefnt ellefu hrossaræktarbú til verðlaunanna „Hrossaræktabú ársins“ en þau verða veitt á árlegri ráðstefnu fagráðs nk. laugardag 8. nóv. Búin eru (í stafrófsröð):
- Einhamar 2
- Eystra-Fróðholt
- Fet
- Flagbjarnarholt
- Halakot
- Hof á Höfðaströnd
- Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
- Lambanes
- Laugarbakkar
- Miðás
- Steinnes
Á ráðstefnunni verða einnig veittar viðurkenningar til handa átta hryssum sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi þetta árið. Ráðstefnan hefst kl. 13 á laugardaginn kemur í Súlnasal Hótel Sögu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson