Kvennatölt fyrir norðan
Vegna fjölda áskoranna hefur Léttir ákveðið að halda Kvennatölt 10. maí í stað Bellutöltsins sem þurfti að aflýsa en snýr aftur að ári. Mótið hefst kl. 16:00
Við ætlum að halda sama þemanu sem er blóðrautt.
Boðið verður upp á 3 styrkleikaflokka í töltinu,
Byrjendaflokkur T8 (Frjáls ferð á tölti – hægt niður á fet og skipt um hönd – Frjáls ferð á tölti)
Minna vanar T1 (einn hringur hægt tölt – – hægt niður á fet og skipt um hönd – einn hringur tölt með hraðamun – einn hringur yfirferðartölt)
Meira vanar T1 (einn hringur hægt tölt – – hægt niður á fet og skipt um hönd – einn hringur tölt með hraðamun – einn hringur yfirferðartölt)
verðlaun verða í hverjum flokki fyrir búning. 18 ára aldurstakmark er á mótið og Kvennakvöldið.
Skráning er hafin og er á [email protected] og lýkur á fimmtudagskvöld. 1000 kr. hver skráning (Bæði þarf að skrá sig á mótið og á kvennakvöldið)
Við skráningu á mótið þarf að koma fram:
Nafn knapa og í hvaða flokk er verið að skrá í
Nafn og litur hests.
Leggja þarf skráningargjaldið inn á 302-26-15839 – kt. 430269-6749 og setja nafn knapa í skýringu.
Skemmtun og matur í félagsheimili okkar Skeifunni fyrir konur þegar töltkeppni lýkur og kostar 1500 kr. inn, húsið opnar síðan kl. 23:00.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH