Frumtamningarnámskeið

  • 31. ágúst 2010
  • Fréttir
Frumtamningarnámskeið

Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal 6. september nk.  
Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
–    Atferli hestsins
–    Leiðtogahlutverk
–    Fortamning á trippi
–    Undirbúningur fyrir frumtamningu
–    Frumtamning
Bóklegir tímar:  2
Verklegir tímar:  12
Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur.
Verð: 30.000.-
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi).  Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning á netfangið [email protected]  – lokaskráningarfrestur er föstudagskvöldið. 3. sept. Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link