Vorsýning kynbótahrossa á Sauðárkróki 2010

  • 9. apríl 2010
  • Fréttir
Vorsýning kynbótahrossa á Sauðárkróki 2010

Fyrsta kynbótasýning ársins verður haldin á Sauðárkróki dagana 23. og 24. apríl í tengslum við sýninguna Tekið til kostanna. Hér er að finna helstu upplýsingar varðandi þessa sýningu:

Skráning og upplýsingar: Leiðbeiningamiðstöðin s: 455-7100
Síðasti skráninga- og greiðsludagur: föstudagurinn 16. apríl
Skráningagjald:
· Fullnaðardómur: 14.500 kr. m. vsk.
· Byggingardómur: 10.000 kr. m. vsk.
Greiðist inn á:
1125 (Sparisjóður Hólahr.) – 26 – 0710
Kt: 580901-3010 skýring: Nafn á hrossi.

Til að fá endurgreitt sýningargjald þarf að tilkynna forföll eigi síðar en 21. apríl.

Dómar fara fram á föstudegi og yfirlitssýning á laugardegi kl:10:00.

Muna: DNA-sýni úr öllum stóðhestum og foreldrum þeirra. Blóðsýni og röntgenmyndir af stóðhestum fimm vetra og eldri.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link