Er hægt að meðhöndla sumarexem með bygggjöf?
Prófaðar voru nokkrar gerðir af sérútbúnum byggmélum. Mynd/SIgurbjörg Þorsteinsdóttir
Á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er unnið að þróun ónæmismeðferðar gegn sumarexemi í hestum. Farnar eru nokkrar leiðir að takmarkinu og er ein þeirra ónæmismeðferð um slímhúð. Sýnt hefur verið fram á að hestar sem meðhöndlaðir voru með möluðu byggi sem tjáir ofnæmisvaka mynduðu sérvirkt mótefnasvar gegn ofnæmisvakanum. Þetta er áríðandi skref í frekari þróun á bóluefni sem forvörn og afnæmingu sem lækningu á exeminu.
Í jólablaði Eiðfaxa rita Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í ónæmisfræði og Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og sérfræðingur í veirufræði grein sem segir frá stöðu rannsókna á sumarexemi. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH