Kvefpestin – opin fræðslufundur

  • 18. maí 2010
  • Fréttir

Mynd: www.hestheimar.is

Kvefpestin - opin fræðslufundur

Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða upp á opinn fræðslufund um kvefpestina sem geisar í hrossastofninum þessa dagana. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma mun halda erindi og svara fyrirspurnum um veikina. Vilhjálmur Svanson, dýralæknir á Keldum mun sennilega koma og fræða okkur um greiningar ofl.  á pestinni.

Staður: Reiðhöllin í Víðidal
Tími: Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.30

Frítt inn og allir velkomnir – veitingar seldar á staðnum.

Andvari, Fákur, Gustur, Hörður, Sóti og Sörli

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link