Dómaramál í brennidepli
Gagnrýni á störf dómara er vinsælt umræðuefni og tíðrætt. Gylfi Geirsson, formaður Hestaíþróttadómarafélags Íslands (HÍDÍ), segir umræðuna stundum ósanngjarna en tekur undir þau orð að dómarastörfin séu það starf sem sífellt þarf að endurskoða og meta upp á nýtt. „Við verðum aldrei sáttir með stöðu dómaramála, við þurfum alltaf að bæta okkur og erum alltaf að reyna það. Við notum hvert tækifæri sem gefst til að uppfæra og fræða dómara.“
Þeir Gylfi og Hörður Hákonarson, yfirdómari Meistaradeildar í hestaíþróttum, litu við á skrifstofu Eiðfaxa í byrjun febrúar til að ræða dómaramálin, menntun dómara og umræðuna um dómstörfin, og væntanlegar breytingar á menntamálum dómara sem eru um það bil að líta dagsins ljós.
„Við höfum verið að sjá breytingar frá FEIF í þá átt að gera keppnina hestvænni, samanber skeið í fimmgangi. Hæga töltið er eitt sem við þurfum að skoða. Á ráðstefnu sem ég sat um daginn spurðu útlendingar mig af hverju við værum að pakka hestinum svona saman og sýna hæga töltið. Er þetta það besta sem við getum gert á íslenska hestinum, að ríða ofsalega safnað hægt tölt? Sumir hestar ráða við þetta en aðrir ekki. Sumir knapar eru að glíma við þennan hæga hraða án nægs undirbúnings og verður þá oft til þessi falska söfnun, hesturinn er þvingaður til eftirgjafar og styttir bara sporið. Að sýna gott hægt tölt er erfið æfing og krefst góðrar reiðmennsku og réttrar söfnunar. Þetta þurfum við dómarar allt að meta. Við þurfum að læra að þekkja það rétta og góða frá hinu falska og ranga,“ segir Hörður Hákosnarson, yfirdómari í Meistaradeildinni í hestaíþróttum.
Ítarlegt viðtal við Gylfa og Hörð er í 2. tölublaði Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH