Hrossaræktendur ekki blankir
Fjórða hvert hross sem skráð var á kynbótasýningu á Mið-Fossum mætti ekki til dóms. Óýtt skráningargjöld voru um ein milljón króna.
Um fjórðungur sýningargjalda á héraðssýningu kynbótahrossa á Vesturlandi, sem haldin var á Mið-Fossum, var ónýttur. Eða um ein milljón króna af rílega fjórum milljónum sem greiddar voru í sýningargjöld.
Með öðrum orðum þýðir þetta að fjórða hvert hross sem skráð var mætti ekki til sýningar. Heimilt er að fá sýningargjaldið endurgreitt ef hrossið getur ekki tekið þátt í sýningu af einhverjum ástæðum, en þá þarf að tilkynna forföll með fyrirvara. Fáir nýttu sér þennan möguleika á kynbótasýningum í fyrra.
Dómarar fá greidda ákveðna upphæð af sýndu hrossi, sem er partur af sýningargjaldinu. Þeir fá ekkert fyrir skráð hross sem mætir ekki, jafnvel þótt skráningargjaldið sé ekki endurgreitt. Það rennur óskipt til viðkomandi búnaðarsambands.
Alls voru um 2180 fullnaðar kynbótadómar framdir á árinu hér á landi. Ef reiknað er með að hlutfall ónýttra sýningargjalda sé á líku róli á öllum sýningum þá gæti upphæð þeirra numið allt að tíu milljónum króna. Það er því ekki að sjá að hrossaræktendur séu blankir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH