Umsókn í Framhaldskólanefnd hestaíþrótta

  • 9. september 2013
  • Fréttir
Hestaíþróttamót framhaldsskólanna er haldið á hverjum vetri. Undirbúningur fyrir næsta mót er að hefjast.

„Umsóknir um þátttöku í framhaldsskólanefnd hestaíþróttum er hér með hafin. Í nefndinni kemur saman ungt hestafólk sem stundar nám við menntaskóla og skipuleggjum við saman hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum, en þar taka skólar víðs vegar um land, þátt. Störf nefndarinnar eru fjölbreytt, áhugaverð og skemmtileg. Við auglýsum því eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni í vetur. Í umsókninni þurfa ykkar helstu upplýsingar að koma fram, fullt nafn, aldur, símanúmer, skóli og af hverju þið hafið áhuga á að vera í nefndinni, en einnig eru upplýsingar umfram þessar vel þegnar. Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 31. september næstkomandi á [email protected]. Ef einhverjar spurningar vakna, getið þið haft samband við Grétu Rut í síma 861-9426 eða sent e-mail á okkur. Ekki vera feimin!!“ F.h. Framhaldsskólanefndarinnar í hestaíþróttum, Arnar Heimir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link