Ræktunarbú Landsmótsins 2011 Syðri-Gegnishólar

  • 2. júlí 2011
  • Fréttir
Ræktunarbú Landsmótsins 2011 Syðri-Gegnishólar

Tvö bú urðu jöfn eftir símakosningu sem fór fram í gær, en það voru Syðri-Gegnishólar og Álfhólar. Þessi tvö urðu því að keppa til úrslita í kvöld laugardagskvöldið og fóru leikar þannig að Syðri-Gegnishólar unnu með nokkru öryggi…

Þau Bergur Jónsson og Olil Amble settu upp ótrúlega skemmtilegt „show“ þar sem meðal annars 4 vekringum var rennt gegnt hver öðrum þannig að tveir og tveir renndu saman hlið við hlið en úr sitthvorri áttinni og mættust pörin svo fyrir miðjum vellinum. Áhættu atriði sem féll í góðan jarðveg hjá áhorfendum,. Á meðan þetta fór fram reið Olil inni í hringvellinum nokkrar spánskar safnandi æfingar.
Álfhólar voru einnig með frábæra takta og renndi Sara Dívu sinni á fleygiferð á tölti án þess að halda um taumana og var það glæsileg sjón.
Það fór samt ekki á milli mála er brekkan var hljóðmæld að sýningum loknum að Syðri-Gegnishólar höfðu hitt í mark
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link