Stóriðjan í samkeppni við spónarframleiðslu
Fyrir nokkrum misserum var spónafyrirtækið Spónaval ehf. eitt stærsta fyrirtæki landsins í spónaframleiðslu. Eftir að skógrækt ríkisins hætti að útvega fyrirtækinu hráefni á því verði sem samið hafði verið um og gerði í framhaldinu samning við stóriðjuna á Grundartanga var grundvöllur framleiðslunnar stórlega breyttur.
Í framhaldi af þessum forsendubresti framleiðslunnar yfirtók banki eignir félagsins, en núverandi eigandi verksmiðjunnar keypti verksmiðjuna af bankanum. “Megintilgangur kaupana voru kaup á fasteigninni sem verksmiðjan er í en það má segja að spónaverksmiðjan hafi fylgt með í kaupunum,” segir núverandi Karl Emilsson núverandi rekstraraðili Spónavals og bætir við að aðeins hafi verið framleitt úr efni sem fallið hefur til hjá Mosfellsbæ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH