Endirinn á sorglegu ferli
Nú í dag fór fram uppboð á hrossum að Hoftúni við Stokkseyri. Uppboð þetta var auglýst af skiptastjóra dánarbúsins á vefmiðlum í þessari viku, en um ræðir dánarbú Þóris Níels Jónssonar sem lést langt fyrir aldur fram eftir stutta baráttu við krabbamein. Ekkja hans Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir hefur rekið dánarbúið eftir fráfall hans en þau áttu jörðina Efra-Sel við Stokkseyri.
Samkvæmt upplýsingum frá skiptastjóra er uppboð þetta lokin á skiptum dánarbúsins sem tekið hefur um tvö ár. „Þetta hefur verið langt og frekar erfitt ferli, en áður hafði Arion banki leyst til sín stóran eignarhlut í jörðinni. Hinn hluta jarðarinnar eiga foreldrar Áslaugar Fjólu, en eignin er óskipt.“ segir skiptastjóri sem stjórnaði uppboðinu.
Hrossin sem boðin voru upp fóru flest á örfáa tugi þúsunda hvert, en hæst var boðið í keppnishestinn Kopar frá Reykjakoti en hann var sleginn á eina milljón króna.
Þetta hefur verið sorglegt ferli og erfitt að bæta fjárhagsáhyggjum og uppboði líku því sem fram fór í dag ofan á það sorgarferli sem missir maka sannarlega er.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH