Torfunes valið ræktunarbú ársins
Á haustfundi HEÞ voru veittar að venju viðurkenningar fyrir ræktunarbú og hæst dæmdu hross félagsmanna 2013.
5 ræktunarbú voru verðlaunuð fyrir góðan árangur 2013, Sámsstaðir,Sauðanes, Torfunes, Akureyri ( Björgvin og Helena) og Litli Dalur.
Af þessum 5 búum var svo Torfunes valið Ræktunarbú ársins á svæði samtakanna. 8 hross frá búinu komu fyrir dóm á árinu og var meðalaldur þeirra 5,5 ár og meðaleinkunn 8,10.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu hross ársins í öllum flokkum, Óvenju mörg hross af svæðinu hlutu háar einkunnir í sumar og ber þar hæst stóðhestinn Gangster frá Árgerði sem hlaut hæstu hæfileikaeinkunn allra sýndra kynbótahrossa ársins 8,94
Það má með sanni segja að vel hafi gengið hjá Eyfirskum og Þingeyskum hrossaræktendum á árinu því auk þess góða árangurs sem tíundaður var á haustfundinum hlaut hrossaræktarbúið Efri Rauðalækur þann heiður nýverið að vera valið Keppnishestaræktunarbú Íslands 2013
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH