Líklegir Sleipnirsbikarhafar
Þegar rýnt er í hvaða hestar séu líklegir til heiðursverðlauna á Lm2014 þá má telja Stála frá Kjarri þar fremstan. Stáli hefur samkvæmt síðustu útreikningum 121 stig í aðaleinkunn kynbótamats og undan honum hafa verið dæmd 59 afkvæmi. Hestarnir sem eru fyrir ofan hann í kynbótamatinu hafa ekki náð tilskyldum afkvæmafjölda en líklegastur af þeim er þó Vilmundur frá Feti með 125 stig í aðaleinkunn kynbótamats en hann vantar 9 afkvæmi.
Einn annar hestur utan Stála hefur náð tilskyldum afkvæmafjölda og lámarkseinkunn í kynbótamati, en það er Krákur frá Blesastöðum með 118 stig og 58 dæmd afkvæmi, en hann má ekkert lækka í útreikningum fram að Landsmóti.
Líklegir heiðursverðlaunahestar:
- Arður Brautarholti 127 stig og 31 dæmt afkvæmi
- Vilmundur Feti 125 stig og 41dæmd afkvæmi
- Blær Torfunesi 123 stig og 33 dæmd afkvæmi
- Stáli Kjarri 121 stig og 59 dæmd afkvæmi
- Gaumur Auðsholtshjáleigu 119 stig og 37 dæmd afkvæmi
- Krákur Blesastöðum 118 stig og 58 dæmd afkvæmi
- Gígjar Auðsholtshjáleigu 118 stig og 44 dæmd afkvæmi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH