Aðalfundur og námskeið í fótaskoðun
Stjórn Járningamannafélags Íslands hefur ákveðið að halda aðalfund 17. apríl n.k.að Skeiðvöllum í Rangavallasýslu.
Dagskrá verður á þá leið að fundur hefst kl. 10:00 með hefðbundnum aðalfundarstörfum.
Hefðbundnum aðalfundi líkur um kl. 12:00 og snæðum við þá saman hádegisverð í boði félagsins.
Eftir hádegi verður boðið upp á námskeið til samræmingar á fótaskoðun fyrir gæðinga- og íþróttamót.
LH hefur lagt inn beiðni til stjórnar JÍ að félagið taki að sér fótaskoðun á LM 2010 eins og undanfarin landsmót. Stjórn JÍ hefur samþykkt að taka beiðninni en hefur farið fram á það við LH að settar verði vinnureglur til samræmingar á túlkun reglna og vinnutilhögunar við fótaskoðun. Námskeiðið verður það fyrsta sem boðið verður uppá í þessum dúr og eru uppi hugmyndir hjá stjórn JÍ að halda megi samskonar námskeið reglulega og það verði forkrafa þess að mega sjá um fótaskoðun á stórmótum og úrtöku til þeirra.
Við vonumst til að sjá sem flesta.
M.kv.stjórnin
Járningamannafélag Íslands
[email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH