Æskulýðsmót Léttis og Lífland
Æskulýðsmót Léttis og Líflands verður laugardaginn 19 apríl næst komandi. Mótið er opið og hefst stundvíslega kl 9:00. Skráning er hafin í Líflandi og er skráningargjald 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu og 500 kr. fyrir aðra skráningu. Ekki verður hægt að greiða skráningargjald með korti.
Einnig er hægt að senda skráningu á [email protected]. Skráningargjald greiðist í upphafi móts.
Keppt verður í:
Fjórgangi V2 í Barna, unglinga og ungmennaflokki.
Tölt T8 í barnaflokki.
Tölti T2 í unglinga og ungmennaflokki.
Fimmgangi opnum flokki
Pollaflokki, frjáls aðferð.
Skráning þarf að berast fyrir fimmtudaginn 17 apríl. Hlökkum til að sjá ykkur.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV