Í fótspor Wittgensteins

  • 15. desember 2012
  • Fréttir
Í fótspor Wittgensteins

Nákvæmlega hundrað árum eftir að heimspekingurinn Ludwig Wittgenstein og David Pinsent fóru hugljómunarför á hestum um kóngsveginn á suðurlandi, endurtók hópur fólks þá sömu ferð nú í haust. Með í för var prófessorinn Ray Monk, einn virtasti fræðimaður heims á sviði heimspeki Wittgensteins.

 
Fararstjórar ferðarinnar, Sigurður I. Björnsson hjá Riding Iceland og Halldór Friðrik Þorsteinsson, heimspekingur rita grein um ferðina sem farin var í haust í jólablaði Eiðfaxa. Jafnframt nýta þeir sér dagbókarskrif Pinsents frá árinu 1912 til að varpa ljósi á frægðarför félaganna fyrir hundrað árum.  
 
Pinsent segir svo í dagbók sinni 5. október 1912 í lok ferðarinnar: 
„Landið var alveg nýr heimur … spennan og allt saman, allt gerði þetta ferðalagið að einni yndislegustu reynslu lífs míns. Þetta skilur eftir allt að því rómantíska dulúð í huga mér, því mesta rómantíkin felst í framandi  upplifunum og framandi umhverfi, hverskyns upplifunum, svo fremi sem þær séu framandi.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link