Ætlar sér að halda skemmtilegasta mót ársins

  • 20. maí 2015
  • Fréttir
Jón Björnsson ráðinn framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts Austurlands.

Framkvæmdanefnd fyrir Fjórðungsmót á Austurlandi er stolt af því að kynna að gengið hefur verið frá ráðningu framkvæmdstjóra fyrir FM´2015. Framkvæmdarnefnin sendi frá sér eftirfarandi frétt:

Á Egilsstöðum í gærkvöldi var skrifað undir samstarfssamning við Jón Björnsson um að taka að sér framkvæmdastjórn fyrir Fjórðungsmót hestamanna á Austurlandi árið 2015 sem haldið verður í Stekkhólma, Fljótsdalshéraði dagan 2.-5. júlí næstkomandi.  Fjórðungsmót Austurlands er stærsti og elsti reglulegi viðburðurinn í hestamennsku í kjördæminu og er haldið á fjögurra ára fresti.

Jón Björnsson er Akureyringur og félagi í Hestamannafélaginu Létti. Hann er mörgum hestamönnum að góðu kunnur, enda hefur hann lagt stund á hestamennsku, ræktun og rekstur tengdum hestamennsku  til margra ára. Margir hafa eflaust séð hann á hestamannamótum um allt land með myndavélina sína, enda er hann einn drjúgasti hestaljósmyndari landsins.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni. Það er góð stemming fyrir mótinu og aðstæður í Stekkhólma eru frábærar. “ segir Jón.

Aðspurður um mikilvægi Fjórðungsmótsins segir Jón: „Mér finnst býsna mikilvægt að hestamennskan á Norðausturlandi öllu hafi þennan vettvang til að sýna sín bestu hross. Breiddin er mikil á svæðinu, og ef okkur tekst ætlunarverk okkar að laða að öll þessu góðu hross og hestaáhugamenn allt frá Dalvík til Hornafjarðarsveita þá veit ég að framtíð Fjórðungsmóta á Austurlandi er björt.“

„Aðalmarkmiðið er að gera þetta að skemmtilegasta móti ársins í hestamennskunni. Fjölskyltuvænt og skemmtilegt er það sem við vinnum útfrá, með að sjálfsögðu alvöru keppni,“  segir Jón með áherslu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link