Mikill fas- og viljahestur
Í sex vetra flokki voru sýndir 83 hestar en þetta var minnsti flokkurinn. Organisti frá Horni var hæstdæmdi hesturinn í þessum flokki í ár og var einnig efstur á Landsmóti, undan Ágústínusi frá Melaleiti og Flautu Spunadóttur frá Horni. Umsögnin um Organista hljóðar svo: „Organisti er afar vel gerður hestur; með hátt settan og mjúkan háls og sterka yfirlínu í baki, enda á hann auðvelt með burð og heldur vel á sér á öllum gangtegundum. Þetta er mikill fas- og viljahestur með 9,0 fyrir allar gangtegundir, nema fetið sem er síst.“ Jafnir eru síðan tveir Ómssynir, Roði frá Lyngholti og heimsmethafinn Konsert frá Hofi er annar í þessum flokki en hann setti heimsmet í flokki fjögurra vetra stóðhesta á Landsmóti 2014. Roði gerði sér einnig lítið fyrir og hlaut 10 fyrir skeið á Landsmótinu. Ljósvaki frá Valstrýtu vakti mikla athygli á Landsmótinu í sumar en þar hlaut hann hvorki meira né minna en 10 fyrir tölt og stökk.
AE Nafn Faðir Móðir
8.72 Organisti Horni I Ágústínus Melaleiti Flauta Horni I
8.69 Konsert Hofi Ómur Kvistum Kantata Hofi
8.69 Roði Lyngholti Ómur Kvistum Glóð Kálfholti
8.67 Glúmur Dallandi Glymur Flekkudal Orka Dallandi
8.67 Ópall Miðási Gaumur Auðsholtshjáleigu Ósk Hestheimum
8.63 Akur Kagaðarhóli Arður Brautarholti Dalla Ási I
8.62 Atlas Hvoli Seiður Flugumýri II Hryðja Hvoli
8.55 Sæþór Stafholti Hákon Ragnheiðarstöðum Bending Kaldbak
8.55 Logi Oddsstöðum I Oliver Kvistum Brák Oddsstöðum I
8.54 Sproti Innri-Skeljabrekku Kvistur Skagaströnd Nánd Miðsitju
8.54 Hlekkur frá Ytra-Vallholti Arnoddur Auðsholtshjáleigu Gnótt Ytra-Vallholti
8.54 Ljósvaki Valstrýtu Hákon Ragnheiðarstöðum Skylda Hnjúkahlíð
Styttu haustið með EiðfaxaTV