Afkvæmahópur Álfs féll í kramið
Afkvæmahópur Álfs frá Selfossi, sem er Sleipnisbikarhafi á LM2012, var glæsilegur og greinilegt að hestamenn kunna vel að meta það sem Álfur hefur lagt til íslenskrar hrossaræktar.
Hann er mjög sterkur á skjótta litinn og flest hrossin í afkvæmahópnum voru skjótt, aðallega rauðskjótt. Það er fallegt yfirbragð á þeim flestum og ekki hægt að vera annað en sammála því að Álfadís hefur „gefið lífinu lit“ í gegnum syni sína, Álf og Álfasteinn.
Afkvæmi Álfs eru kát að sjá, puntuleg á tölti og brokki og sum verulega flott. Ekta sport- og söluhross! Nokkur eru ágætlega vökur, þótt ekki sé hægt að tala um garpa eða stórbrotna alhliða gæðinga.
Álfur er yngsti stóðhestur sögunnar til að hljóta Sleipnisbikarinn fyrir afkvæmi, 10 vetra. Hann er líka í úrslitum í B flokki gæðinga. Frábær og óvenjuegur árangur. Ræktandi og eigandi Álfs er Christina Lund. Hún mun flytja hestinn til Noregs síðar á þessu ári.
Umsögn dómnefndar:
Álfur gefur hross í meðallagi að stærð með frítt og skarpt höfuð, beina neflínu og vel opin augu. Hálsinn er reistur og mjúkur en all djúpur við háar herðar. Bakið er breitt og vöðvafyllt en getur vantað burð, lendin er öflug en oft áslaga. Afkvæmin eru fótahá og hlutfallarétt en stundum nokkuð brjóstdjúp. Fætur eru þurrir með öflugar sinar en nágengir. Hófar eru djúpir en frekar þröngir og prúðleiki í meðallagi. Álfur gefur úrvals tölt og brokk, taktgott, skref- og lyftingarmikið. Fetgangur er yfir meðallagi og að jafnaði skrefmikill, hrossin stökkva hátt og vel. Fjölhæfni afkvæmanna skiptir í tvö horn hvað vekurð varðar en nokkur eru vel vökur. Afkvæmin eru bráðviljug og samstarfsfús og fara frábærlega vel með háum fótaburði.
Álfur gefur fríð og reist hross. Afkvæmin eru samstarfsfús og aðsópsmikil með úrvals fótaburð. Álfur hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH