Meistaradeildin hefst 30.janúar
Meistaradeildin hefur göngu sína í lok janúar
Meistaradeild í hestaíþróttum hefur göngu sína þann 30.janúar 2020. Aðalfundur deildarinnar var haldinn í lok síðasta mánaðar og innan deildarinnar ríkir góður andi. Nýjir knapar og lið hafa bæst í hópinn og munum við kynna þau nánar á næstu dögum.
Ný stjórn var valin, Ingibjörg Guðmundsdóttir heldur áfram sem formaður deildarinnar en ný í stjórn eru þau Hulda Finnsdóttir, gjaldkeri, Helga Gísladóttir, ritari, Karl Áki Sigurðsson, meðstjórnandi, og Sigríður Pjétursdóttir, meðstjórnandi og yfirdómari. Vill deildin þakka fyrri stjórn fyrir frábær störf, þeim Örvari Kjærnested, Ólafi Árnasyni, Þorvarði Friðbjörnssyni og Loga Laxdal.
Hér fyrir neðan er svo dagskrá vetrarins.
Dagskrá 2020
Dagsetning Grein
30.janúar fimmtudagur Fjórgangur V1
13.febrúar fimmtudagur Slaktaumatölt T2
27.febrúar fimmtudagur Fimmgangur F1
8.mars sunnudagur Gæðingafimi
14.mars laugardagur Skeiðmót – gæðingaskeið og 150m. skeið
26.mars fimmtudagur Tölt T1 og flugskeið