Viltu setjast í stjórn LH?
Stjórn LH sem kosinn var á Landsþingi 2012.
Landsþing Landssamband hestamannafélaga, verður haldið helgina 17. og 18. október á Hótel Selfossi.
Rétt er að benda á að þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða varastjórn þurfa að tilkynna það minnst hálfum mánuði fyrir landþing LH. Það er fyrir 3. október nk. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH.
Framboð skulu berast til kjörnefndar þingsins. Í nefndinni eru: Guðmundur Hagalínsson: [email protected] , Margeir Þorgeirsson: [email protected] og Ása Hólmarsdóttir: [email protected].
Haraldur Þórarinsson, sem hefur sinnt embætti formanns LH í 8 ár, hefur enn ekki gefið upp hvort hann muni sækjast eftir áframhaldandi setu í stjórn.