Meistaradeild KS í hestaíþróttum
Sigurlið Hrímnis í Meistaradeild KS 2019
Meistaradeild KS í hestaíþróttum hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ein af skemmtilegustu deildum landsins. Keppni fer nú fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki auk þess að eitt mót fer fram í Léttishöllinni á Akureyri. Það þarf ekki að fjölyrða um það hversu mikilvæg keppnisdeild sem þessi er fyrir hestamennskuna. Í deildinni keppa 8 lið og í hverju liði eru fimm knapar. Einungis keppa þó þrír úr hverju liði á kvöldi.
Pláss er fyrir tvö ný lið í deildinni þetta árið þar sem tvö lið féllu á síðasta ári. Úrtaka fer fram 15.janúar þar sem riðin er forkeppni í fimmgangi (F1) og fjórgangi (V1) og keppa tveir úr hverju liði í hvorri grein.
Breytingar eru á stjórn þetta árið en þær Inga María S. Jónínudóttir og Helga Rósa Pálsdóttir eru ekki með í stjórn þetta árið. Guðbjörn Tryggvason og Snorri Jóhannesson koma nýjir inn í stjórnina.
Dagskrá 2020
15. janúar – Úrtaka (Sauðárkrókur)
5. febrúar – Slaktaumatölt (Sauðárkrókur)
19. febrúar – Gæðingafimi (Sauðárkrókur)
4. mars – Fjórgangur (Akureyri)
18.mars – Fimmgangur (Sauðárkrókur
3.apríl – Tölt og flugskeið (Sauðárkrókur)
Eiðfaxi hlakkar til að fylgjast með Meistaradeild KS í hestaíþróttum í vetur, en keppni í henni er yfirleitt spennandi og frábærir knapar og hestar taka þátt á öllum kvöldum.