Nýr formaður Spretts
Aðalfundur Hestamannafélagsins Spretts/Mynd fenginn af vef Sprettara
Hestamannafélagið Sprettur er fjölmennasta hestamannafélag landsins með 1621 skráðan félagsmann. Það var stofnað árið 2012 við samruna Gusts í Kópavogi og Andvara í Garðabæ.
Góð mæting var á fundinn og jákvæð stemming meðal fundarmanna í málefnalegum umræðum.
Stjórn fór yfir helstu verkefni liðins árs og reikningar voru lagðir fram en félagið var rekið með rúmlega níu milljóna króna hagnaði sl. rekstrarár.
Í stjórn voru kjörin Gréta Guðmundsdóttir, Pétur Örn Sverrisson og Snorri Garðarsson og nýr formaður var kjörinn Sverrir Einarsson.
Mörg spennandi verkefni eru framundan og ber þar hæst Landsmót 2022, auk þess sem kynntar voru t.d. spennandi hugmyndir er lúta að nýliðun og barna- og unglingastarfi.
Fráfarandi formanni og stjórnarmönnum voru þökkuð góð störf sem og framkvæmdastjóra félagsins sem hyggur á önnur mið og lætur af störfum á nýju ári.
Frá þessu er greint á vef Hestamannfélagsins Spretts www.sprettarar.is
Eiðfaxi óskar Sverri Einarssyni og hans stjórn velfarnaðar í starfi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH