Íþróttamaður ársins, hestamaður?
Jóhann Rúnar Skúlason vann magnað afrek á árinu
Árið 1993 var merkilegt ár fyrir hestaíþróttir, því þá var Sigurbjörn Bárðarson kjörinn íþróttamaður ársins. Það er í fyrsta og eina skipti sem hestaíþróttamaður hefur hlotið þessa eftirsóttu nafnbót. Það mætti þó ætla að knapi ársins 2019, væri mjög líklegur til afreka í kjöri um íþróttamann ársins.
Jóhann Rúnar Skúlason er knapi ársins, en hann vann magnað afrek á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín í ágúst á þessu ári. Þegar hann varð þrefaldur heimsmeistari á Finnboga frá Minni-Reykjum, í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum.
Samkvæmt vef ÍSÍ þá voru árið 2017, 12.092 iðkendur í hestaíþróttum, en það eru nýjustu upplýsingar sem fundust við vinnslu fréttarinnar. Hestaíþróttir voru það ár þriðja fjölmennasta íþróttagrein landsins á eftir golfi (19.389) og knattspyrnu (25.343). Því þarf ekki að efast um það hvort hestaíþróttir séu fjölmenn og vinsæl íþróttagrein!
Á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín áttu 19 þjóðir fulltrúa í keppni. Íslenska landsliðið í hestaíþróttum stóð efst á mótinu með sjö heimsmeistaratitla, tvö silfur og þrjú brons. Þá stóðu lið Þýskalands, Svíþjóðar og Danmerkur sig einnig vel á mótinu
Jóhann er magnaður íþróttamaður en hann á að baki hvorki meira né minna 19 heimsmeistaratitla. Þá hefur hann orðið heimsmeistari í tölti alls sjö sinnum á fimm mismunandi hestum.
Árið 2013 varð hann í ellefta sæti af þeim sem hlutu tilnefningu til íþróttamanns ársins. Það ár varð hann tvöfaldur heimsmeistari á Hnokka frá Fellskoti. Í ár vann hann þó þrjá titla og því eðlilegt að ætla að við hestamenn gætum á ný eignast íþróttamann ársins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH