Afmælis- og uppskeruhátíð Geysis

  • 25. nóvember 2019
  • Fréttir
Guðmundur Björgvinsson er knapi ársins hjá Geysi

Guðmundur Björgvinsson er knapi ársins hjá Geysi

Stórkostleg 70 ára afmælis- og uppskeruhátíð Geysis fór fram á laugardaginn 23.nóvember í Hvoli, Hvolsvelli. Tæplega 200 manns komu og skemmtu sér frábærlega.

 

Viljum við þakka Sláturfélagi Suðurlands kærlega fyrir matinn og kokkinum Braga Þór Hanssyni fyrir dýrindis 3 rétta kvöldverð sem borinn var fram af starfsmönnum leikskólans Arkar á Hvolsvelli

Einnig viljum við þakka öllum þeim sem komu að þessari hátíð sem gerði hana að þeirri skemmtun sem hún var, með verðlaunaafhendingum, ræðum, veislustjóra og skemmtiatriðum af bestu gerð. Við þökkum Helga Sigurðsyni kærlega fyrir glæsilega bók um 70 ára sögu Geysis sem var kynnt fyrr um kvöldið og fyrrverandi formönnum Geysis, Landssambandi hestamannafélaga og öllum þeim 8 hestamannafélögum sem eru á suðurlandsundirlendinu og alla leið austur á Kirkjubæjarklaustur kærlega fyrir frábærar afmælisgjafir til félagsins.

Óskum þeim sem urðu heiðursfélagar Geysis til hamingju og þökkum þeim fyrir ómetanlegt starf, en þeir eru Ágúst Ingi Ólafsson, Bergur Pálsson, Eggert Pálsson, Einar Grétar Magnússon, Helga Fjóla Guðnadóttir og Sigurður Sæmundsson. Að lokum óskum við verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Verðlaunahafar voru eftirfarandi:

Sjálboðaliðar – Guðný H. Indriðadóttir og Magnús Kristjánsson

Mjölnisbikarinn – Sigurður Sigurðarson og Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1

Ungmenni Geysis – Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir

Heimahagabikarinn – Katrín Sigurðardóttir

Skeiðskálin – Guðmundur F. Björgvinsson

Gæðingaknapi – Sigurður Sigurðarson

Íþróttaknapi – Davíð Jónsson

Knapi ársins – Guðmundur F. Björgvinsson

Keppnishestabú – Kirkjubær

Ræktunarbú – Strandarhjáleiga

Kynbótahross:

  1. vetra hryssa:

Mánadís frá Feti

Ræktandi: Hrossaræktarbúið Fet

Aðaleinkunn: 8.24 /Hæfileikar: 8,28 / Bygging: 8.18

Dagmar frá Hjarðartúni

Ræktandi: Óskar Eyjólfsson

Aðaleinkunn: 8.24 /Hæfileikar: 8,32 / Bygging: 8.11

 

 

  1. vetra hestur:

Pensill frá Hvolsvelli

Ræktandi: Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir

Aðaleinkunn: 8.39 /Hæfileikar: 8,15 / Bygging: 8.76

5.vetra hryssa:

Eldey frá Strandarhjáleigu

Ræktandi: Þormar Andrésson og Elvar Þormarsson

Aðaleinkunn: 8.45 /Hæfileikar: 8,60/ Bygging: 8.22

  1. vetra hestur:

Hjörvar frá Rauðalæk/ Ræktandi: Pabbastrákur ehf

Aðaleinkunn: 8.39 /Hæfileikar: 8,22 / Bygging: 8.65

  1. vetra hryssa:

Álfanótt frá Vöðlum

Ræktandi: Ástríður Lilja Guðnadóttir

Aðaleinkunn: 8,46 / Hæfileikar: 8.37 / Bygging: 8.59

  1. vetra hestur:

Sproti frá Þjóðólfshaga 1

Ræktandi: Sigríður Arndís Þórðardóttir og Sigurður Sigurðarson

Aðaleinkunn: 8,50 / Hæfileikar: 8.55 / Bygging: 8.43

  1. vetra og eldri hryssa:

Elja frá Sauðholti 2

Ræktandi: Sigrún Þóroddsdóttir og Jakob S. Þórarinsson

Aðaleinkunn: 8,76 / Hæfileikar: 8.88 / Bygging: 8.56

  1. vetra og eldri hestur:

Nói frá Stóra-hofi / Ræktandi: Bæring Sigurbjörnsson

Aðaleinkunn: 8,73 / Hæfileikar: 8.75 / Bygging: 8.68

 

Hæsti stóðhestur ræktaður og í eigu Geysisfélaga:

 

Atlas frá Hjallanesi 1

Ræktandi: Guðjón Sigurðsson

Aðaleinkunn : 8.59

 

Hæsta hryssa ræktuð og í eigu Geysisfélaga:

Eldey frá Strandarhjáleigu

Ræktandi: Þormar Andrésson og Elvar Þormarsson

Aðaleinkunn 8.45

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link