Hrossaræktarfundir

  • 19. febrúar 2019
  • Fréttir
Fundarferð um landið.

Fundir um málefni hrossaræktarinnar hefjast fljótlega en fyrsti fundurinn er miðvikudagskvöldið 20 febrúar á Akureyri. Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni um landið og kynna það sem er efst á baugi. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

Þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt 

Dómskalinn – þróun og betrumbætur

Nýjir vægistuðlar eiginleikanna

Málefni Félags hrossabænda

Eins og sjá má verður margt áhugavert tekið til umræðu.

Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

20. febrúar miðvikudagur Akureyri – Reiðhöllin á Akureyri kl. 20:00.

21. febrúar fimmtudagur Skagafjörður – Tjarnarbær kl. 20:00.

22. febrúar föstudagur Vestur-Húnavatnssýsla – Gauksmýri kl. 20:00.  

25. febrúar mánudagur Reykjavík – Reiðhöllin í Víðidal kl. 20:00.

27. febrúar miðvikudagur Borgarnes – félagsheimili Borgfirðings kl. 20:30. 

1. mars föstudagur Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 20:00.

2. mars laugardagur Austurland – Iðavellir kl. 14:00.

4. mars mánudagur Suðurland – reiðhöllin á Hellu kl. 20:00.

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link