Laust í tamningar
Enn vantar okkur nokkur trippi, í tamningarnar hjá 2. árinu eftir áramótin.
Ferlið hefst með frumtamningu, sem miðar fyrst og fremst að því að gera trippin reiðfær. Samhliða er lögð áhersla á teymingar og aðra vinnu við hendi. Í framhaldi af frumtamningunni hljóta hrossin grunnþjálfun, þar sem megináhersla er lögð á að gera þau góð í beisli, þjálfa samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, sem og gangsetningu. Enn fremur uppbyggingu þreks, jafvægis og vilja.
Forkröfur: Trippin komi fortamin (a.m.k. bandvön). Þau þurfa að hafa náð góðum þroska. Æskilegt er að þau séu undan 1. verðlauna stóðhestum. Ætlast er til að búið sé að heyja trippin áður en þau koma í Hóla..
Tamningatrippi komi á staðinn þriðjudaginn 5. janúar 2016, milli kl. 13:00 og 17:00.
Skiladagur laugardagurinn 19. mars.
Kostnaður – fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr. 105.000.
Innifalið: Allt uppihald, auk járninga og ormalyfsgjafar.
Hér má panta fyrir hross í tamningar á vorönn 2016.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH