Ný og endurbætt heimasíða

  • 27. nóvember 2019
  • Fréttir
Enn eitt skrefið tekið í rétta átt að okkar mati sem stöndum að Eiðfaxa

 

Nú hefur litið dagsins ljós ný heimasíða Eiðfaxa. Unnið hefur verið að hönnun nýja vefsins undanfarnar vikur og mánuði.

Vefumsjónarkerfið á þessari nýju heimasíðu mun bjóða upp á mun fleiri möguleika í að koma á framfæri efni til lesenda síðunnar. Við gerð nýju síðunnar var leitast við að gera efni aðgengilegra og um leið auka fjölbreytni á síðunni.

Áskrifendur Eiðfaxa geta nú sent tölvupóst á [email protected] og óskað eftir lykilorði til að skoða fjölmörg tölublöð Eiðfaxa. Þá geta hestaunnendur og aðrir slegist í hóp þeirra fjölmörgu áskrifenda sem fá tölublaðið sent heim að dyrum með því að smella á „Komdu í áskrift“.

Nýjasta tölublað Eiðfaxa mun svo fara í dreifingu snemma í desember en blaðið er tvöföld hátíðarútgáfa og eru efnistök fjölbreytt.

Núna næstu vikur munum við halda áfram að bæta inn á vefinn eldri viðtölum og fleiru fréttatengdu efni.

Það er von okkar að þessi nýja heimasíða verði til þess að styrkja hestatengda umfjöllun hér á landi.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link