Ræktunarverðlaun Svía

  • 28. nóvember 2019
  • Fréttir
Góður árangur hrossaræktenda í Svíþjóð - Þorleifur og Tone ræktunarfólk ársins!

 

Um síðustu helgi fór fram uppskeruhátíð hrossaræktenda í Svíþjóð. Alls voru kveðnir upp 302 sköpulagsdómar og 271 reiðdómur í Svíþjóð á þessu ári.

Kynbótaknapi ársins í Svíþjóð er Erlingur Erlingsson en hann sýndi 37 hross á árinu, meðalaldur þeirra er 6,9 ár. Meðaltal sköpulags er 8,14, meðaltal hæfileika 7,87 og meðaltal aðaleinkunnar 7,98.

Hrossaræktendur ársins eru þau Þorleifur Sigfússon og Tone S Ranes, en þau rækta hrossa frá Gunvarnby. Alls voru sjö hross sýnd úr þeirra ræktun á árinu og var meðaltal sköpulagseinkunnar 8,44, meðaltal hæfileika 8,06 og meðaltal aðaleinkunnar 8,21. Hrossin voru 6 vetra að meðaltali.

Toppur frá Auðsholtshjáleigu hlaut 1.verðlaun fyrir afkvæmi eins og Eiðfaxi fjallaði um í gær.

Tvö hross hlutu verðlaun sem keppnishestar ársins í Svíþjóð.

Oddi fran Skeppargarden náði góðum árangri í keppni á árinu með knapa sínum Caspar Hegardt en þeir hlutu til að mynda silfur á HM í Berlín.

Milla fran Ammor náði einnig frábærum árangri í keppni á árinu með knapa sínum Jack Eriksson og urðu þau heimsmeistarar í slaktaumatölti ungmenna.

Þá hlutu þrjár hryssur verðlaun sem ræktunarhryssur. Þær Glóð frá Árbæ og Tilviljun fran Knutshyttan hlutu báðar svokolluð „Elit“ verðlauna, en báðar hafa þessar hryssur verið að koma vel út sem ræktunarhryssur. Þá hlaut Prinsessa fran Agersta „Klass 2“ verðlaun fyrir afkvæmi.

Þá voru veitt verðlaun fyrir hæst dæmda hross í hverjum aldursflokki.

  1. vetra hryssa: Ösk fran Prastgarden Ae: 7,98
  2. vetra stóðhestur: Snotur fran Blasbotorpet Ae: 7,58
  3. vetra hryssa: Venus fran Snacksjon Ae: 8,10

5.vetra stóðhestur: Kolgrímur-Grímsson fran Gunvarbyn Ae: 8,55

6.vetra hryssa: Tíbrá fran Knutshyttan Ae: 8,37

6.vetra stóðhestur: Vísir fran Tavelsjo Ae: 8,62

7.vetra hryssa og eldri: Garrdís fran Solbacka Ae: 8,60

7.vetra stóðhestur og eldri: Fengur fran Backome Ae: 8,65

Geldingur: Ketill fran Knutshyttan Ae: 8,08

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link