Skeiðnámskeið
Að leggja á skeið er einfaldlega toppurinn á hestamennskunni.
Því er
tilvalið að skella sér á skeiðnámskeið þar sem hinn frækni og marfaldi
Íslands- og heimsmeistari Sigurbjörn Bárðarson mun kenna knöpum á öllum
aldri (16 ára og uppúr) listina að leggja hest á skeið.
Farið verður í ábendingar, ásetu, uppbyggingu skeiðhests, niðurtöku,
skeiðsprettinn og hvernig enda á sprettina. Bóklegur tími og verklegir
tímar verða í Reiðhöllinni 18. og 19. mars (nánari tími fyrir bóklegan
tíma auglýstur síðar).
Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt sendi póst á [email protected]
Styttu haustið með EiðfaxaTV