Horses of Iceland á ráðstefnu í Kína

  • 18. desember 2019
  • Fréttir
Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland, tók þátt í 2019 World Horse Culture Forum í Hohhot, Kína, 28. nóvember til 1. desember.
  • Ísland var meðal 30 landa sem áttu fulltrúa á ráðstefnunni.
  • Ráðstefnan fékk mikla fjölmiðlaathygli í Kína, en um hana var fjallað í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins, CCTV.
  • Hestamennska er í örum vexti í Kína og þar gætu leynst markaðstækifæri fyrir íslenska hestinn.
  • Kínversk sendinefnd vill koma til Íslands til að kynna sér íslenska hestamenningu betur.

 

Jelenu Ohm, verkefnastjóra Horses of Iceland, var boðið að taka þátt í ráðstefnunni 2019 World Horse Culture Forum í Hohhot í Innri Mongólíu, Norður-Kína, 28. nóvember til 1. desember. Þar komu saman fulltrúar hrossakynja frá 30 löndum til að ræða hestamennsku. Jelena tók þátt í umræðum sem höfðu yfirskriftina „The Integration of Horse Culture Related Tourism“, um hestamenningu og ferðaþjónustu.

 

Ráðstefnan vakti mikla athygli í Kína, en fjallað var um hana í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins CCTV. Á ráðstefnunni voru um 200 blaðamenn og mörg viðtöl voru tekin við alla þátttakendur. Myndbönd frá ráðstefnunni voru sýnd á risaskjáum víða um borgina, þar sem m.a. íslenski sendiherra sendi kveðjur. Kínverski herinn kom fram á opnunarhátíðinni og sérstakt lag, sem hafði verið samið fyrir þetta tilefni, var flutt.

 

Jia Youling, forseti Chinese Horse Industry Association (CHIA), kínversku hestasamtakanna, tók þátt í ráðstefnunni og fékk Jelena tækifæri til að spjalla við hann á einkafundi. Jia Youling starfar í landbúnaðarráðuneyti Kína, sem gefur til kynna hversu mikilvægur málaflokkur hesturinn er Kínverjum. CHIA hefur t.d. lagt til að hestafræði verði kennd í grunnskólum.

 

 

Eftir ráðstefnuna fékk Horses of Iceland senda yfirlýsingu frá fulltrúum CHIA í Kína um að sendinefnd hafi áhuga á að koma til Íslands og kynnast íslenskri hestamenningu nánar. Horses of Iceland hefur einnig látið kanna möguleg markaðstækifæri í Kína með markaðsgreiningu. Hestamennska, sérstaklega frístundareið, er í miklum vexti í Kína. Kínverskir ferðamenn koma í auknu mæli til Íslands, þrátt fyrir samdrátt í ferðaþjónustu, en í ár var 16% aukning í fjölda ferðamanna frá Kína miðað við árið 2018.

 

Jelena Ohm segir: „Það var mikill heiður að íslenski hesturinn hafi fengið að vera hluti af þessari ráðstefnu. Ráðstefnan var fyrst og fremst vettvangur fyrir fólk til að tala saman og mynda tengsl. Þetta var í fyrsta skipti sem fulltrúi frá Íslandi tók þátt og það var enginn annar fulltrúi frá Skandinavíu. Fólk var mjög áhugasamt. Ég var með um 150 eintök af bæklingnum okkar á kínversku og þeir bara hurfu. Það verður spennandi að sjá hvort það séu framtíðartækifæri fyrir íslenska hestinn í Kína.“

 

Um World Horse Culture Forum

World Horse Culture Forum var haldin í fyrsta skipti í ár, en ráðstefnuna skipulagði CHIA til þess að styrkja samvinnu hagsmunaaðila innan alþjóðlega hestasamfélagsins. Hohhot er vagga hestamennskunnar, en það var á þessu svæði sem Genghis Khan reið af stað með her sínum til að leggja undir sig heiminn á 13. öld. Stefnt er að því að halda World Horse Culture Forum annað hvert ár.

 

Um Horses of Iceland

Markaðsverkefnið Horses of Iceland var stofnsett árið 2015 til að auka verðmætasköpun í tengslum við íslenska hestinn, styrkja ímynd hans í vitund fólks um allan heim og byggja upp sterkt vörumerki, Horses of Iceland.

 

Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins og starfar með verkefnastjórn sem skipuð er fulltrúum úr hestasamfélaginu, Félagi hrossabænda (FHB), Landssambandi hestamannafélaga (LH), Félagi tamningamanna (FT), auk útflutningsaðila og fulltrúa frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Samtökum ferðaþjónustunnar.

 

 CHIA prufar sýndarveruleikagleraugun þar sem Laufskálarétt og norðurljósareið er til sýnis. Hann var svo hrifinn að hann fékk gleraugun líka gefins.

Forseti CHIA prufar sýndarveruleikagleraugun þar sem Laufskálarétt og norðurljósareið er til sýnis. Hann var svo hrifinn að hann fékk gleraugun líka gefins.

Kappreiða völlur í Hohhot, Innri Mongólía

Kappreiða völlur í Hohhot, Innri Mongólía

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link