Forsalan heldur áfram
„Kæru fylgjendur landsmóts – gleðilegt nýtt (landsmóts)ár. Forsala hefur farið fram úr öllum björtustu vonum og seldir miðar á Landsmót á Hólum nálgast nú 3.000! Vegna frábærra viðbragða við forsölu okkar höfum við ákveðið að framlengja hana til 6. janúar. Eftir þrettándann hækkar verðið og verð á vikupassa fer úr 11.900 kr. í 15.900 kr. Það verður verðið til 15. júní, en eftir það kostar vikupassinn 21.900 og það mun hann kosta ef keypt verður í mótshliðinu.
Við þökkum frábærar viðtökur og munum leggja okkur fram um að halda frábært landsmót á Hólum á komandi sumri.“
Landsmót 2016 á Hólum í Hjaltadal
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH