Fyrirlestur um fóðrun og kynning á dagskrá vetrarins hjá Sörla
Miðvikudagskvöldið 8.janúar klukkan 20:00 mun fara fram fyrirlestur um fóðrun hesta að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Það er hestamannafélagið Sörli sem stendur að viðburðinum.
Fyrirlesari er Einar Ásgeirsson en hann er menntaður fóðurfræðingur og starfar hjá Fóðurblöndunni. Hann mun leggja áherslu á fóðrun reiðhesta og mismunandi fóðurþarfir hrossa.
Við sama tilefni verður kynning á vetrardagskrá Hestamannafélagsins Sörla þar sem farið verður yfir helstu viðburði, námskeið o.fl sem verður í boði í vetur.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH