Þjálfun með Þórarni
Sýnikennsla fer fram í Svaðastaðahöllinni á morgun fimmtudaginn 16.janúar. Sýnikennslan hefst klukkan 20:00. Þórarinn Eymundsson mun fara yfir þjálfun með ýmis hross sem hann stefnir með í sýningar og keppni á árinu.
Hann útskýrir um leið þær æfingar og verkefni sem hann leggur áherslu á í þjálfun.
Þórarinn þarf vart að kynna og er þetta frábært tækifæri til að fá innblástur fyrir komandi vetur!
Unglingadeild Skagfirðings sér um veitingasölu.
Aðgangseyrir 1500 kr og rennur ágóðinn til tækjakaupa í reiðhöllinni.