Gullsleginn sauðfjárbóndi
Kristín Lárusdóttir sigraði örugglega töltið hér í Herning á Þokka frá Efstu-Grund. Verðskuldaður sigur hjá Kristínu en hún reið af miklu öryggi og heillaði áhorfendur með frábærri reiðmennsku. Kristín vakti mikla athygli hjá áhorfendum og í samtali við fréttaritara Heimsmeistaramótsins taldi hún sig vera sauðfjárbónda sem byggi örlítið út úr hestaheiminum á Íslandi og því eflaust ekki allir sem könnuðust við hana. Kristín breytti því svo sannarlega í dag þegar hún varð fyrsta konan til að hampa tölthorninu á Heimsmeistaramóti og gerði það með glæsibrag.
Sigurbjörn og Jóhann deildu með sér fjórða sætinu en í öðru var Nils Christian Larsen frá Noregi og í því þriðja var Katie Brumpton frá Finnlandi. Hún sigraði b úrslitin í gær og grét af gleði þegar niðurstöður voru tilkynntar.
Niðurstöður – Tölt – A úrslit
POS # RIDER / HORSE TOT
01: 006 Kristín Lárusdóttir [IS] – Þokki frá Efstu-Grund [IS2003184151] 8,44
SLOW 9,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 = 8,33
LENG 8,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 = 8,33
FAST 8,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 = 8,67
02: 124 Nils Christian Larsen [NO] – Viktor fra Diisa [DK2004103659] 7,94
SLOW 8,5 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 8,5 = 8,17
LENG 7,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,0 = 7,83
FAST 7,5 – 7,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 = 7,83
03: 058 Katie Brumpton [FI] – Smári från Askagården [SE2002101468] 7,89
SLOW 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 8,33
LENG 8,0 – 7,5 – 8,0 – 7,0 – 8,0 = 7,83
FAST 7,0 – 7,5 – 7,5 – 7,5 – 8,0 = 7,50
04: 002 Jóhann R. Skúlason [WC] [IS] – Garpur fra Højgaarden [DK2008109008] 7,83
SLOW 8,0 – 8,0 – 7,5 – 7,5 – 8,0 = 7,83
LENG 7,5 – 7,5 – 7,5 – 8,0 – 7,5 = 7,50
FAST 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 8,17
04: 008 Sigurbjörn Bárðarson [IS] – Jarl frá Mið-Fossum [IS2002135538] 7,83
SLOW 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 = 8,50
LENG 7,5 – 8,5 – 7,0 – 7,0 – 8,5 = 7,67
FAST 7,5 – 8,0 – 6,5 – 6,5 – 8,0 = 7,33
06: 144 Unn Kroghen Aðalsteinsson [SE] – Hrafndynur frá Hákoti [IS2005186427] 7,61
SLOW 7,0 – 6,5 – 7,0 – 7,5 – 7,0 = 7,00
LENG 6,5 – 7,5 – 8,0 – 8,0 – 7,0 = 7,50
FAST 8,0 – 7,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 = 8,33
07: 158 Diddi Sigurbjörnsson [CH] – Tvinni frá Grafarkoti [IS2001155419] 7,22
SLOW 7,5 – 6,5 – 6,5 – 7,0 – 7,0 = 6,83
LENG 7,0 – 7,0 – 7,5 – 7,5 – 7,5 = 7,33
FAST 7,5 – 7,5 – 7,5 – 7,5 – 8,0 = 7,50
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH