Hrossaræktarfundir – fundarferð um landið

  • 12. febrúar 2020
  • Fréttir
Fundir um málefni hrossaræktarinnar hefjast í næstu viku

Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni um landið og kynna það sem er efst á baugi. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

  • Nýtt ræktunarmarkmið í hrossarækt
  • Dómskalinn – þróun og betrumbætur
  • Nýjir vægistuðlar eiginleikanna
  • Sýningarvorið
  • Málefni og starf Félags hrossabænda

Eins og sjá má verður margt áhugavert tekið til umræðu.

Fundirnir verða haldnir um allt land en tveir fyrstu fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

  1. febrúar þriðjudagur Borgarnes – félagsheimili Borgfirðings kl. 20:00.
  2. febrúar miðvikudagur Hafnarfjörður – Reiðhöll Sörla kl. 20:00.

Næstu fundir verða svo auglýstir fljótlega.

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link