Tamningaferli – námskeið
Fimmtudaginn 21. nóvember nk. mun hestafræðideild Háskólans á Hólum bjóða upp á símenntunarnámskeið undir yfirskriftinni Tamningaferli Háskólans á Hólum. Námskeiðið er ætlað þeim er útskrifast hafa úr hestafræðideildinni, sem og öðrum félagsmönnum í Félagi tamningamanna. Dagskrá námskeiðsins verður nánar auglýst síðar, en tamningamenn eru hvattir til að taka daginn frá.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH