Íslensk hrossarækt í 100 ár- Ráðstefna
Félag hrossabænda, Háskólinn á Hólum, Matvælastofnun, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Sögusetur íslenska hestsins.
Íslensk hrossarækt í 100 ár – Stefnumótun hrossaræktarinnar – Ráðstefna haldin laugardaginn 3. desember.
Minnt er á ráðstefnuna Íslensk hrossarækt í 100 ár. Afar spennandi dagskrá er í boði og er allt áhugafólk um hrossarækt hvatt til að mæta.
Það stefnir í góða mætingu og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig fyrir 1. desember. Skráningin fer fram hér á heimasíðunni, rml.is (sjá: Á döfinni) eða í gegnum tengil neðst hér í auglýsingunni. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis en til sölu verður dýrindis hádegismatur á sanngjörnu verði.
Þróun og endurskoðun ræktunarmarkmiðsins og dómskalans er að fara í gang af krafti. Mikilvægt er að marka stefnu til næstu ára; móta ræktunarmarkmiðin og matið á hestinum í kynbótadómum. Því er hugmyndin að virkja fundarfólk til þátttöku í þeirri vinnu. Á ráðstefnunni verður því um hópavinnu að ræða þar sem þátttakendum verður skipt í vinnuhópa til að fara í gegnum fyrst og fremst tvö umræðuefni:
- Ræktunarmarkmiðin
- Hin almennu markmið; m.a. heilsa, ending, frjósemi, litir, stærð.
- Eitt eða fleiri ræktunarmarkmið.
- Vægistuðlar eiginleikanna.
- Alhliða hestar – klárhestar með tölti; tvær aðaleinkunnir.
- Dómskalinn – þróun og uppfærsla – Hæfileikar hrossa:
- Matsaðferðir við dóma.
- Uppsetning reiðdómsins – verkefni til betra mats.
- Dómar á ungum hrossum – kröfur eftir aldri.
- Hlutlægar matsaðferðir.
Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hérna að neðan en hún samanstendur af áhugaverðum og skemmtilegum fyrirlestrum og fyrrgreindri hópavinnu og kynningu hennar í lokin:Staðsetning: Samskipahöllin í Spretti
Tímasetning: 3. desember, 10:00 – 17:00Dagskrá:
Ráðstefnustjóri: Ágúst Sigurðsson
- 10:00 – 10:20 Saga íslenskrar hrossaræktar og notkunar hestsins í 100 ár – Kristinn Hugason
- 10:30 – 10:50 Rannsóknir í þágu hestsins – Sveinn Ragnarsson
- 11:00 – 11:20 Þróun kynbóta og næstu skref í þekkingaröflun – Þorvaldur Árnason
- 11:30 – 11:50 Þróun notkunar hestsins og keppnisgreina – Anton Páll Níelsson
- 12:00 Matarhlé
- 13:00 – 13:20 Velferð, ending og frjósemi hestsins – Sigríður Björnsdóttir
- 13:30 – 13:50 Hrossaræktin og markaðurinn – Olil Amble
- 14:00 – 14:20 Þróun ræktunarmarkmiðsins – Þorvaldur Kristjánsson
- 14:20 – 15:10 Stefnumótun – Hópavinna
- Kaffihlé – 20 mínútur
- 15:30 – 16:20 Stefnumótun – Hópavinna
- 16:20 – 16:55 Samantekt – Hópstjórar kynna afrakstur hópavinnunnar
- 16:55 – 17:00 Lokasamantekt og ráðstefnuslit
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH