Veislan heldur áfram – Gæðingafimi á sunnudaginn

  • 3. mars 2020
  • Sjónvarp Fréttir
Á sunnudaginn næsta fer fram keppni í gæðingafimi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum. Keppni hefst kl 12:10 og verður hún haldin í Samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi. Við mælum með að allir fjölmenni í höllinni, gæði sér á dýrindis veitingum og horfi á bestu knapa og hesta landsins leika listir sínar.
Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum unnu þessa grein í fyrra en gaman verður að sjá hvaða hestar mæta til leiks á sunnudaginn. Ráslistar munu birtast á vef Meistaradeildarinnar www.meistaradeild.is á þriðjudagskvöld. Hægt er að fylgjast með í beinni á Facebook síðu deildarinnar þegar dregið verður í rásröð.
Það er mikil spenna í liða- og einstaklingskeppninni en nóg af stigum er eftir í pottinum. Eins og er leiðir lið Hjarðartúns með 160.5 stig en í öðru sæti er lið Hrímnis/Export hesta með 129 stig og í því þriðja lið Top Reiter með 124 stig. Í einstaklingskeppninni er Jakob Svavar Sigurðsson efstur með 30 stig, í öðru sæti Árni Björn Pálsson með 14 stig og í því þriðja Viðar Ingólfsson með 13 stig.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link