Ágiskunarleikur Eiðfaxa – Verðlaun í boði

  • 7. mars 2020
  • Fréttir

Nú er komið að því að giska á það hvaða knapar raða sér í efstu sæti í keppni í gæðingafimi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum sem fram fer á morgun sunnudag.

Allir geta tekið þátt með því að  skrifa í kommenta-kerfið á facebook hverjir þau telja að verði sex efstu knapar og hver standi uppi sem sigurvegari.

Einungis á að giska á sex efstu knapa og í hvaða röð þeir enda.

Að þessu sinni eru verðlaunin ekki af verri endanum því sá sem flest stig hlýtur fær sent heim nýtt árstíðarrit Eiðfaxa Vetur sem er í prentun. Um er að ræða 124 blaðsíðna tímarit uppfullt af skemmtun og fróðleik.

 

Ráslista í gæðingafimi má nálgast hér

Reglurnar eru einfaldar.

15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara
10 stig fást fyrir að vera með par í rétttu sæti
5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link