Boða endurvakningu stökkkappreiðanna

  • 24. september 2014
  • Fréttir
Sterkur og ónýttur vettvangur að mati knapa.

Eitt sinn þótti eftirsóknar­vert að vera með fljóta stökkhesta og menn lögðu mikla vinnu við þjálfun þeirra. Há peningaverðlaun voru fyrir sigur í kappreiðum. Sem dæmi gaf sigur í 800 metra stökki á hvítasunnukappreiðunum hjá Fáki peningaupphæð sem samræmdist kostnaði við að fóðra hest í heilan vetur. Oft var gefið andvirði bifreiða, Willis jeppa, fyrir fyrstu verðlaun og/eða ef sett var nýtt Íslandsmet. „Þetta var þannig að fljótustu stökkhestarnir voru orðnir jafnvirði dýrustu keppnishesta. Þeir voru metnir í milljónum á þeim tíma,“ segir Sigurbjörn Bárðarson en hann var, og er, einn af okkar fremstu mönnum í kappreiðum og rak lengi kappreiðahestaútgerð.

Greinina má nálgast í 9. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link